fréttir

Athuga! prentvilla í  síðasta pósti, bónussalsakvöldið 17. júlí er á Rex, ekki Thorvaldsen!
Aukum við salsakvöldin!  Næsta salsakvöld er að venju á Sólon þann 7. júlí og aftur 21. júlí. Ókeypis prufutími fyrir byrjendur er á sínum stað kl. 20:00. Eftir það er dansgólfið laust fyrir alla salsaunnendur. Hins vegar ætlum við að skella inn auka salsakvöldi á Rex fimmtudaginn 17. júlí með sama hætti og venjulega! Nóg sumarsalsa fyrir alla!

Bónusnámskeið í júlí hjá Mike  Sökum ítrekaðra áskorana höfum við ákveðið að bjóða upp á stutt bónusnámskeið í ladystyling og spinning tækni hjá Mike. Námskeiðið er kennt á mán. og fim. kl. 17:30-18:30 fjórum sinnum í Þórshamri og hefst mánudaginn 14. júlí. Nánari upplýsingar eru hér .   

Rueda workshop 9.-10. ágúst!  Pétur kemur til okkar frá Danmörku þar sem hann kennir og dansar, og heldur workshop í rueda ásamt Eddu. Námskeiðin eru á tveimur getustigum, og svo verðum við með salsaveislu á laugardagskvöldinu. Sjá allar upplýsingar hér og skráning er hafin hér

Ibi kemur í septemberbyrjun til að halda hjá okkur workshop! Ibi er nemendum SalsaIceland góðkunnur og hefur ásamt dansfélaga sínum, Marinu Prada, haldið fjöldan allan af helgarnámskeiðum hjá okkur við frábæran orðstír. Þau Ibi og Marina eru fagdansarar sem keppa og kenna um allan heim, hafa tekið verðlaun á heimsmeistaramótum í salsa og reka stærsta salsadansskóla á Norðurlöndum, SalsaAkademien. Ibi heldur workshop hjá okkur 5.-7. september, skráning er hafin hér og allar nánari upplýsingar má fá hér. Um sama leyti hefst nýtt byrjendanámskeið! 

Salsahópur SalsaIceland sýndi á Ingólfstorgi á 17. júní við brjálaðar undirtektir. Show-ið tókst frábærlega, hér geturðu kíkt á það, og hér líka. Takk aftur, allir sem voruð í áhorfendahópi og studduð okkur!

Nýjir SalsaIceland bolir komnir Langar þig í? Kíktu hér.
Myndast hefur innan SalsaIceland ruedahópur sem hittist reglulega til að dansa rueda. Endilega skelltu þér í fjörið, þú finnur hópinn á Facebook, hópurinn heitir SalsaIceland Ruedahópurinn!!
Langar þig að koma skilaboðum til félaga þinna í SalsaIceland til skila? Sendu okkur póst eða notaðu Facebook þar sem við erum öll!

 Ferðasagan frá Kúbu er hér, og hér geturðu séð fullt, fullt af myndum! Athugið, enn fleiri myndir bíða birtingar :)

 

Næsta byrjendanámskeiðhefst í ágústbyrjun. Þá mun einnig hefjast nýtt CC2 framhaldsnámskeið (fyrir þá sem tekið hafa 1-3 námskeið)  undir handleiðslu Eddu.  Hér eru allar upplýsingar, og hægt er að skrá sig hér