Skoða námskeið
Byrjendanámskeið, 1x í viku, hefst 11. janúar
Byrjendanámskeiðið sem hefst 10. janúar er fullt fyrir stakar dömur. Við bjóðum því upp á annað námskeið, sem kennt er 1x í viku á mánudagskvöldum. Það stendur yfir í 10 vikur. Að venju er óþarft að mæta með félaga þó það sé ódýrara. Hér er farið í grunninn, kennd grunnspor og -fléttur, svo og stýra/fylgjatækni sem nauðsynleg er á dansgólfinu. Að loknu námskeiði eru allir nemendur tilbúnir á salsakvöld! Hér má sjá umfjöllun um námskeiðsuppbyggingu okkar. Strákar, við minnum á að allir þið sem hafið tekið byrjendanámskeið hjá okkur getið mætt aftur á það ókeypis til að æfa ykkur!
Til að halda kynjahlutföllum góðum höfum við lokað fyrir skráningar á stökum dömum á þetta námskeið. Pörum og stökum herrum er ennþá velkomið að skrá sig á þetta námskeið. Áhugasömum dömum er bent á næsta byrjendanámskeiðið okkar sem mun hefjast um miðjan febrúar!
Fyrsta kennslustund: 11. jan.
Byrjendanámskeið hefst 17. febrúar
Byrjendanámskeið sem hefst 17. febrúar og er kennt tvisvar í viku, á miðvikudögum og sunnudögum, í 1,5klst í senn. Óþarft er að hafa félaga til að skrá sig, (þó það sé ódýrara) enda skiptum við reglulega um félaga og þannig dansa allir við alla (nema þau pör sem vilja bara dansa við hvort annað, sem er í fínu lagi).
Við minnum alla herra SalsaIceland á að þeir sem hafa tekið byrjendanámskeið hjá okkur að þeir mega taka þátt í námskeiðinu aftur frítt, til æfinga.
Skráning er hafin hér á heimasíðunni, við bendum stökum dömum á að skrá sig sem fyrst, þar sem við neyðumst til að loka námskeiðunum þegar kynjahlutföllin verða of ójöfn.
Lokað hefur verið fyrir skráningar á stökum dömum á þetta námskeið. Áhugasömum dömum er velkomið að skrá sig og fara þar með á biðlista. Það er ennþá opið fyrir skráningar á pörum og stökum herrum.
Fyrsta kennslustund: 17. feb.
4. stig - b hluti, fyrra holl
Ibi og Edda fara í flóknari fléttur með margföldum snúningum, flóknari fótavinnu og tæknilegri útfærslur. Þetta er fyrir þá aðila sem lokið hafa 3. stigi (a,b, og c hluta), og líka þá sem hafa bætt við sig 4a námskeiðinu, þó það sé ekki skylda. Áhugasamir sem ekki hafa lokið þessum stigum en vilja skrá sig er bent á leiðbeiningar okkar um getustig hér , eða að senda okkur póst til ráðfæringar. Skráning fer fram í pörum og herrar fá "2 fyrir 1" og manna tvær dömur. Lesa má um þetta fyrirkomulag hér .
Fyrsta kennslustund: 21. feb.
4 stig, b hluti, seinni hópur
Ibi og Edda fara í flóknari fléttur með margföldum snúningum, flóknari fótavinnu og tæknilegri útfærslur. Þetta er fyrir þá aðila sem lokið hafa 3. stigi (a,b, og c hluta), og líka þá sem hafa bætt við sig 4a námskeiðinu, þó það sé ekki skylda. Áhugasamir sem ekki hafa lokið þessum stigum en vilja skrá sig er bent á leiðbeiningar okkar um getustig hér , eða að senda okkur póst til ráðfæringar. Skráning fer fram í pörum og herrar fá "2 fyrir 1" og manna tvær dömur. Lesa má um þetta fyrirkomulag hér .
Fyrsta kennslustund: 21. feb.
3. stig, b hluti, fyrri hópur
Hér fara Edda og Ibi í LA style salsa, en gaman er að geta þess að Ibi er gestakennari hjá okkur þessa önnina frá SalsaAkademíunni í Stokkhólmi, og margverðlaunaður af HM í salsa. Námskeiðið er öllum þeim sem lokið hafa 1. Og 2. Stigi, og við mælum með að nemendur hafi lokið 3a, þó það sé engin skylda. Þátttaka í 3c er hvorki fyrirstaða né skylda, enda er þar um að ræða kúbanskt salsa. Skráning er opin fyrir pör, þeim sem vantar félaga er bent á að senda okkur póst til að skrá sig á biðlista. Kennt er á þriðjudagskvöldum og boðið upp á „2 fyrir 1“ fyrirkomulag fyrir strákana (sjáið nánar hér ). Námskeiðið stendur í 6 vikur.
Við bendum þeim sem vantar félaga á að senda okkur póst til að skrá sig á biðlista, eða að skrá sig hér á heimasíðunni án félaga.
Fyrsta kennslustund: 23. feb.