Skoða námskeið
Lady style 2 hefst 22. mars
SalsaIceland býður upp á lady style 2 námskeið fyrir stelpurnar, námskeið sem er sett saman af Marinu Prada og kennt af Eddu Blöndal.
Hér koma dömurnar saman og dansa í friði fyrir strákunum. Við æfum okkur í að virkja allan líkamann í salsanu, því þótt herrarnir stýri fléttunum getum við alveg leikið okkur og leyft sköpunargleðinni og danstilfinningunni að njóta sín (svo lengi sem það truflar ekki flétturnar). Þá þurfum við að geta notað allan líkamann í dansinum og leikið okkur með fótavinnu og takt. Þetta lærum við á námskeiðinu, til að geta fyllt pardansinn því kryddi sem við viljum hverju sinni.
Af hverju? Þarna þurfum við ekki að bíða eftir að hafa félaga á dansgólfinu! - og gerum pardansinn persónulegri og skemmtilegri fyrir okkur!
Um er að ræða 6 skipta námskeið, kennt er í Kiwanis húsinu í 1 klst. og korter í senn. Þetta námskeið er á getustigi 2 í lady style, þ.e.a.s. fyrir dömur sem lokið hafa 1-2 námskeiðum hjá okkur, eða helgarnámskeiðum hjá Marinu í lady style. Athugið að oft er það æfinguna sem vantar til að lady style-ingið skili sér í social-dansinn, við ráðleggjum því lengra komnu dömunum okkar eindregið að skella sér líka!
Fyrsta kennslustund: 22. mars
2. stigs námskeið, hefst 7. apríl
2. stigs námskeið, fyrir alla þá sem lokið hafa byrjendanámskeiði SalsaIceland, hefst miðvikudaginn 7. apríl. Kennt er á sunnudögum og miðvikudögum í 1,5klst í senn, og námskeiðið stendur yfir í 5 vikur.
Að venju þarf ekki félaga til að skrá sig, þó það sé ódýrara. Við minnum einnig þá SI herra sem tekið hafa 2. stigs námskeiðin tvisvar, að þeir mega sækja þessi námskeið FRÍTT til æfinga. Þá er bara að senda okkur tölvupóst til að tilkynna þátttöku.
Opnað verður fyrir skráningu á þetta námskeið þann 24. mars.
Fyrsta kennslustund: 7. apríl
Byrjendanámskeið 7. apríl
Byrjendanámskeið sem hefst 7. apríl og er kennt tvisvar í viku, á miðvikudögum og sunnudögum, í 1,5klst í senn. Óþarft er að hafa félaga til að skrá sig, (þó það sé ódýrara) enda skiptum við reglulega um félaga og þannig dansa allir við alla (nema þau pör sem vilja bara dansa við hvort annað, sem er í fínu lagi).
Við minnum alla herra SalsaIceland á að þeir sem hafa tekið byrjendanámskeið hjá okkur að þeir mega taka þátt í námskeiðinu aftur frítt, til æfinga.
Skráning hefst hér á heimasíðunni þann 20. mars, og við bendum stökum dömum á að skrá sig sem fyrst, þar sem við neyðumst til að loka námskeiðunum þegar kynjahlutföllin verða of ójöfn.
Fyrsta kennslustund: 7. apríl