Skoða námskeið: 3. stig, b hluti, fyrri hópur
Lýsing
Hér fara Edda og Ibi í LA style salsa, en gaman er að geta þess að Ibi er gestakennari hjá okkur þessa önnina frá SalsaAkademíunni í Stokkhólmi, og margverðlaunaður af HM í salsa. Námskeiðið er öllum þeim sem lokið hafa 1. Og 2. Stigi, og við mælum með að nemendur hafi lokið 3a, þó það sé engin skylda. Þátttaka í 3c er hvorki fyrirstaða né skylda, enda er þar um að ræða kúbanskt salsa. Skráning er opin fyrir pör, þeim sem vantar félaga er bent á að senda okkur póst til að skrá sig á biðlista. Kennt er á þriðjudagskvöldum og boðið upp á „2 fyrir 1“ fyrirkomulag fyrir strákana (sjáið nánar hér ). Námskeiðið stendur í 6 vikur.
Við bendum þeim sem vantar félaga á að senda okkur póst til að skrá sig á biðlista, eða að skrá sig hér á heimasíðunni án félaga.
Kennslustund
| Dags. | Staður | Byrjunar tími | Enda tími |
|---|---|---|---|
| 23. feb. | Kiwanis húsið, Engjateigi 11 | 18:30 | 20:00 |
| 2. mars | Kiwanis húsið, Engateigi 11 | 18:30 | 20:00 |
| 9. mars | Kiwanis húsið Engjateigi 11 | 18:30 | 20:00 |
| 10. mars | Kiwanis húsið, Engjateigi 11 | 18:30 | 20:00 |
| 23. mars | Kiwanis húsið, Engjateigi 11 | 18:30 | 20:00 |
| 30. mars | Kiwanis húsið, Engjateigi 11 | 18:30 | 20:00 |
Verð og skráning
- Einstaklingsverð: 11.000 kr.
- Paraverð: 22.000 kr.