Skoða frétt: Lady style workshop með Marinu Prada
Skrifað: 11. feb. 17:36
Marina Prada kemur til Íslands og heldur helgarnámskeið í lady style hjá SalsaIceland 26.-28. febrúar. Lesið meira um Marinu hér.
Í boði eru tímar á þremur getustigum, sjá leiðbeiningar hér fyrir neðan. Við dönsum í leikfimisal Menntaskólans í Reykjavík.
Opið er fyrir skráningu í staka tíma (vinsaml. sendið tölvupóst á salsaiceland@salsaiceland.is til að skrá staka tíma).
Að venju verður brjálað salsaball á laugardagskvöldinu, og vonumst til að sjá sem flesta nemendur okkar á gólfinu!
Skráning er hafin hér á heimasíðunni: 1. stig, 2. stig og 3. stig.
Byrjar: 26. feb. 18:00 / Endar: 28. feb. 16:30