Skoða frétt: Salsanámskeið á Akureyri!
Skrifað: 10. feb. 21:15
Salsaæðið hefur dreifst til Akureyrar og helgina 19.-21. febrúar snýr Salsa Iceland aftur norður yfir heiðar!
Í boði eru tímar á tveimur getustigum, fyrir byrjendur þar sem engin fyrri reynsla af dansi er nauðsynleg, og fyrir lengra komna sem eru þeir sem tóku þátt í síðasta námskeiði Salsa Iceland á Akureyri.
Við dönsum í sal í Líkamsræktarstöðinni Bjargi og verða tímarnir föstudag, laugardag og sunnudag (sjá stundarskrá).
Skráning er hafin hér á heimasíðunni:
Einstaklingar - byrjendur
Einstaklingar - 2. stig
Pör - byrjendur
Pör - 2. stig
Í þetta skipti ætlum við að bæta um betur og vera með salsaball á laugardagskvöldinu á efri hæð Café Amour!! Þar ætlum við að hittast, spæna upp dansgólfið og æfa allt það sem við höfum lært á námskeiðinu.
Fyrir frekari upplýsingar vinsamlega sendið tölvupóst á sandra@salsaiceland.is, eða hringið í hana (það má líka skrá sig hjá henni): 867-2019.
Byrjar: 19. feb. 18:00 / Endar: 21. feb. 16:00