Skoða frétt: SalsaIceland fer á Scandinavian Salsa Congress
Skrifað: 10. feb. 12:45
Það er mikill tilhlökkun í hóp kennara og nemenda SalsaIceland sem ætlar að fara til Gautaborgar í mars á hina árlegu salsa ráðstefnu Scandinavian Salsa Congress. Framboð á kennslutímum og sýningum þetta árið er glæsilegra en aldrei fyrr og ljóst að þetta verður snilldar ferð. Það má lesa meira um ráðstefnuna hér: Scandinavian Salsa Congress
Fyrir áhugasama má nefna að stefnt er að því að sækja næsta stóra viðburð í Svíþjóð, Hot Salsa Weekend 2010, í október. SalsaIceland stendur ekki fyrir eiginlegri hópferð en við erum að sjálfsögðu tilbúin að aðstoða fólk við að halda hópinn.
Byrjar: 19. mars 10:00 / Endar: 21. mars 23:59