Skoða frétt: Men's movement and musicality með Ibirocay Regueira

Skrifað: 21. feb. 9:51

Ibirocay Regueira sem kennir nú 3 og 4 stig hjá SalsaIceland mun vera með tíma í men's movement and musicality 26.-27. febrúar. Lesið meira um Ibirocay Regueira hér.

Í boði eru tímar á tveim getustigum, sjá leiðbeiningar hér fyrir neðan. Við ætlum að hittast og setja svolítið af testosteróni í loftið á Batteríinu Hafnarstræti 1-3. Opið er fyrir skráningu í stakan tíma (vinsaml. sendið tölvupóst á olafur@salsaiceland.is til að skrá staka tíma).

Styttra komnir: Þeir strákar sem að eru búnir með 2 stig og/eða eru á 3 stigi
Lengra komnir: Þeir strákar sem að hafa tekið 4 stig eða eru á 4 stigi núna.

Verð 3.000 kr. fyrir tvo tíma og 2.000 kr. stakur tími.

Að venju verður brjálað salsaball á laugardagskvöldinu, og vonumst við til að sjá sem flesta nemendur okkar á gólfinu!

Skráning er hafin hér á heimasíðunni: styttra komnir, lengra komnir.

Byrjar: 26. feb. 18:00 / Endar: 28. feb. 2:00