Skoða frétt: Lady style 2 hefst 22. mars - frestað
Skrifað: 4. mars 9:06
SalsaIceland býður upp á lady style 2 námskeið fyrir stelpurnar, námskeið sem er sett saman af Marinu Prada og kennt af Eddu Blöndal.
Hér koma dömurnar saman og dansa í friði fyrir strákunum. Við æfum okkur í að virkja allan líkamann í salsanu, því þótt herrarnir stýri fléttunum getum við alveg leikið okkur og leyft sköpunargleðinni og danstilfinningunni að njóta sín (svo lengi sem það truflar ekki flétturnar). Þá þurfum við að geta notað allan líkamann í dansinum og leikið okkur með fótavinnu og takt. Þetta lærum við á námskeiðinu, til að geta fyllt pardansinn því kryddi sem við viljum hverju sinni.
Af hverju? Þarna þurfum við ekki að bíða eftir að hafa félaga á dansgólfinu! - og gerum pardansinn persónulegri og skemmtilegri fyrir okkur!
Um er að ræða 6 skipta námskeið, kennt er í Kiwanis húsinu í 1 klst. og korter í senn. Þetta námskeið er á getustigi 2 í lady style, þ.e.a.s. fyrir dömur sem lokið hafa 1-2 námskeiðum hjá okkur, eða helgarnámskeiðum hjá Marinu í lady style. Athugið að oft er það æfinguna sem vantar til að lady style-ingið skili sér í social-dansinn, við ráðleggjum því lengra komnu dömunum okkar eindregið að skella sér líka!
Byrjar: 18. mars 18:45 / Endar: 18. mars 20:00