Skoða frétt: SalsaIceland nemendur detta í lukkupottinn!

Skrifað: 18. júní 13:21

Magnús Pétur, salsadansari og cuban-snillingur kíkir í heimsókn 24.-26. júní og býður nemendum SalsaIceland workshop og tíma í Rueda, afro cuban moves og rumbu!

Tímarnir eru á þremur getustigum, þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi! Pétur er búsettur í Árósum og dansar þar með kennurum frá Kúbu, og hefur á síðastliðnum árum ferðast mikið og þróað með sér geggjað salsa í afró-kúbönskum stíl.

Eldri nemendur SalsaIceland þekkja Pétur frá fyrri heimsóknum hans, og minnast flotta sýningaratriðsins sem hann samdi og sýndi með sýningarhópi SalsaIceland á menningarnótt 2008.

Verði er haldið algjörlega í lágmarki, í boði eru tímar fyrir pör og einstaklinga, stakir tímar og heilt workshop. Sjá nánari upplýsingar og skráningu undir námskeið á næstunni hér til hliðar.

Byrjar: 24. júní 17:30 / Endar: 26. júní 15:30