Skoða frétt: Seinni lota sumarnámskeiða að hefjast, og salsa á Thorvaldsen fimmtudaginn 1. júlí!

Skrifað: 28. júní 9:57

Sumarið líður, en ekki án dansins! Rumbu - og merenguenámskeið fyrir öll stig hefjast á fimmtudag, og í næstu viku chachacha og Kynningarnámskeið fyrir byrjendur! TAKIÐ EFTIR að við höfum neyðst til að loka fyrir skráningu á stökum dömum á kynningarnámskeiðið, en þær geta þó skráð sig á biðlista. Skráning er enn opin fyrir pör og staka herra. Og ekki gleyma salsakvöldinu okkar fimmtudaginn 1. júlí, ókeypis prufutími að venju kl. 20:30, Taxi dansar frá SIST og tilboð á barnum!