Skoða frétt: Drop-in: Flamenco
Skrifað: 12. júní 10:23
Að venju verður drop in tími á þriðjudaginn 16. júní. Marina Prada kennir flamenco styling hjá okkur þriðjudagskvöldið 16. júní á tveimur stigum styttra komnir: kl. 19:00-20:00 og lengra komnir 20:00-21:00. Tímarnir fara fram í Þórshamri, Brautarholti 22.
Tímarnir eru á fáránlegu verði: 1000 kr. stykkið. Ekki láta ykkur vanta í geggjaða stemmningu hjá kennara á heimsmælikvarða.
Byrjar: 16. júní 19:00 / Endar: 16. júní 21:00