Fréttir
Sumarfrí SalsaIceland
Skrifað: 18. júní 10:47
SalsaIceland fer í sumarfrí dagana 17. júní - 8. júlí. Þrátt fyrir það verður salsaveisla á Thorvaldsen á sínum stað fimmtudaginn 25. júní og við svörum að sjálfsögðu fyrirspurnum og tökum við skráningum á heimasíðunni.
Við hefjum svo seinni part sumarsins á kynningarnámskeiði og latin mix námskeiði þann 9. júlí.
Salsaveisla á Thorvaldsen
Skrifað: 18. júní 10:41
SalsaIceland tilkynnir NÝJAN salsastað síðasta fimmtudag í hverjum mánuði: THORVALDSEN! Eins og venjulega er frír prufutími fyrir byrjendur kl. 20:30 og eftir það er dansgólfið laust fyrir alla salsaóða til kl. 01:00. Tilboð af barnum: bjór 600 kr, léttvín 700 kr og mojito 1.000 kr. Sjáumst í stuði!
Drop-in: Flamenco
Skrifað: 12. júní 10:23
Að venju verður drop in tími á þriðjudaginn 16. júní. Marina Prada kennir flamenco styling hjá okkur þriðjudagskvöldið 16. júní á tveimur stigum styttra komnir: kl. 19:00-20:00 og lengra komnir 20:00-21:00. Tímarnir fara fram í Þórshamri, Brautarholti 22.
Tímarnir eru á fáránlegu verði: 1000 kr. stykkið. Ekki láta ykkur vanta í geggjaða stemmningu hjá kennara á heimsmælikvarða.
SI föt í prentun!
Skrifað: 10. júní 19:19
Langar þig að eignast flott SalsaIceland föt? við erum að skella í prentun. Áhugasamir sendi Söndru póst: sandra@salsaiceland.is og komi fötunum á hana í Þórshamar um helgina, eða á Sólon á mánudag.
Marina Prada kennir um helgina!
Skrifað: 2. júní 23:28
Marina Prada kennir úrval af drop in tímum laugardaginn 13. júní, auk þess að kenna flamenco styling á tveimur getustigum í drop in tímum okkar þriðjudaginn 16. júní! Hér má sjá dagskrána laugardaginn 13. júní:
Lesið meira um Marinu hér.