Fréttir
Men's movement and musicality með Ibirocay Regueira
Skrifað: 21. feb. 9:51
Ibirocay Regueira sem kennir nú 3 og 4 stig hjá SalsaIceland mun vera með tíma í men's movement and musicality 26.-27. febrúar. Lesið meira um Ibirocay Regueira hér.
Í boði eru tímar á tveim getustigum, sjá leiðbeiningar hér fyrir neðan. Við ætlum að hittast og setja svolítið af testosteróni í loftið á Batteríinu Hafnarstræti 1-3. Opið er fyrir skráningu í stakan tíma (vinsaml. sendið tölvupóst á olafur@salsaiceland.is til að skrá staka tíma).
Styttra komnir: Þeir strákar sem að eru búnir með 2 stig og/eða eru á 3 stigi
Lengra komnir: Þeir strákar sem að hafa ...
Lady style workshop með Marinu Prada
Skrifað: 11. feb. 17:36
Marina Prada kemur til Íslands og heldur helgarnámskeið í lady style hjá SalsaIceland 26.-28. febrúar. Lesið meira um Marinu hér.
Í boði eru tímar á þremur getustigum, sjá leiðbeiningar hér fyrir neðan. Við dönsum í leikfimisal Menntaskólans í Reykjavík.
Opið er fyrir skráningu í staka tíma (vinsaml. sendið tölvupóst á salsaiceland@salsaiceland.is til að skrá staka tíma).
Að venju verður brjálað salsaball á laugardagskvöldinu, og vonumst til að sjá sem flesta nemendur okkar á gólfinu!
Skráning er hafin hér á heimasíðunni: 1. stig, 2. stig og 3. stig.
Salsaveisla á Thorvaldsen
Skrifað: 10. feb. 23:00
Fimmtudaginn 25. febrúar kl. 20:30. Að venju býður Thorvaldsen okkur geggjuð tilboð á barnum: bjór á 500, léttvín á 700 og mojito á 1000! Ókeypis prufutími fyrir byrjendur kl. 20:30. Sjáumst á dansgólfinu á Thorvaldsen!
Salsa partí á Thorvaldsen
Skrifað: 10. feb. 22:00
Í tilefni af lady (og men) style helginni okkar 26.-28. febrúar verður geggjað salsapartí á Thorvaldsen laugardagskvöldið 27. febrúar. Við ætlum að hittast og borða saman kl 19:30 og eftir það byrjar ballið sem stendur fram eftir nóttu. Ekki missa af þessu!
Salsanámskeið á Akureyri!
Skrifað: 10. feb. 21:15
Salsaæðið hefur dreifst til Akureyrar og helgina 19.-21. febrúar snýr Salsa Iceland aftur norður yfir heiðar!
Í boði eru tímar á tveimur getustigum, fyrir byrjendur þar sem engin fyrri reynsla af dansi er nauðsynleg, og fyrir lengra komna sem eru þeir sem tóku þátt í síðasta námskeiði Salsa Iceland á Akureyri.
Við dönsum í sal í Líkamsræktarstöðinni Bjargi og verða tímarnir föstudag, laugardag og sunnudag (sjá stundarskrá).
Skráning er hafin hér á heimasíðunni:
Einstaklingar - byrjendur
Einstaklingar - 2. stig
Pör - byrjendur
Pör - 2. stig
Í þetta skipti ætlum við að bæta um betur og vera með salsaball á laugardagskvöldinu á ...