Fréttir

Salsaveisla á Thorvaldsen

Skrifað: 18. júní 13:19


Fimmtudaginn 24. júní kl. 20:30. Að venju býður Thorvaldsen okkur geggjuð tilboð á barnum: bjór á 700, léttvín á 700 og mojito á 1000! Ókeypis prufutími fyrir byrjendur kl. 20:30. Sjáumst á dansgólfinu á Thorvaldsen!

Lesa meira...

Salsa í Noregi

Skrifað: 18. júní 13:18


Nemendum Salsa Iceland býðst sérstakur afsláttur á tvö workshop sem haldin verða í Noregi í sumar.

Fyrst er um að ræða 2nd Nordic Salsa Experience, hefðbundið congress með tímum með hinum ýmsu kennurum, sýningum og partyum. Haldið í Drammen 10.-13.júní. Allar nánari upplýsingar má nálgast á www.salsanordic.com.

Hitt tilboðið, 4th Salsa Sommer Camp hljóðar upp á “salsa sumarfrí” á lítilli eyju fyrir utan Osló helgina 28. júlí til 1.ágúst. Þessi viðburður fókusar meira á félagslega hlið salsa dansins með dansleikjum með lifandi tónlist og slíkum viðburðum en einnig verða í boði tímar með góðum og ...

Lesa meira...

Salsaveisla á Thorvaldsen

Skrifað: 18. júní 13:17


Fimmtudaginn 1. júlí kl. 20:30. Að venju býður Thorvaldsen okkur geggjuð tilboð á barnum: bjór á 700, léttvín á 700 og mojito á 1000! Ókeypis prufutími fyrir byrjendur kl. 20:30. Sjáumst á dansgólfinu á Thorvaldsen!

Lesa meira...

Sýning Salsa Iceland á Ingólfstorgi OG SalsaVeisla á Thorvaldsen

Skrifað: 16. júní 22:44


Salsa Iceland ætlar að halda upp á 17. júní með glæsibrag og býður öllum vinum sínum og vandamönnum að taka þátt í gleðinni!

Við byrjum kvöldið á INGÓLFSTORGI þar sem sýningarhópur Salsa Iceland mun stíga á svið kl. 21:50 með stórglæsilega sýningu þar sem salsadansinn fær að njóta sín á 3 mismunandi vegu. Þetta er sýning sem ekkert ykkar vill missa af!

Eftir sýninguna á Ingólfstorgi ætlum við svo öll að marsera saman inn á Thorvaldsen þar sem Salsa Iceland verður með salsakvöld og eitt besta dansgólf bæjarins verður sjóðandi heitt í salsasveiflu fram eftir nóttu.

Sömu góðu tilboðin ...

Lesa meira...

Sumardagskráin 2010

Skrifað: 17. maí 21:36


Yfir sumartímann verður boðið upp á styttri námskeið hjá SalsaIceland.

Kynningarnámskeið í salsa er 3ja skipta námskeið fyrir byrjendur sem verður á dagskrá tvisvar yfir sumartímann, í júní og júlí. Einnig er tilvalið fyrir byrjendur að skella sér á námskeið í merengue sem verður í júlí.

Fyrir lengra komna verður einnig boðið upp á stutt námskeið í bachata, chachacha, rumbu og salsa tækni.

Nánari upplýsingar um hvert námskeið má finna hér til hliðar.

Lesa meira...