Fréttir

Salsakvöld á Sólon

Skrifað: 12. júlí 12:48


Mánudaginn 9. ágúst býður SalsaIceland upp á ókeypis prufutíma fyrir byrjendur kl. 20:00, og eftir það er gólfið frjálst fyrir alla salsadansara til kl. 23:30. Sjáumst á dansgólfinu!

SalsaIceland salsakvöld á Sólon, 2. hæð, mánudaginn 9. ágúst.

Lesa meira...

Seinni lota sumarnámskeiða

Skrifað: 2. júlí 13:00


Seinni lota sumarnámskeiðanna hefst í byrjun júlí, en þá fara af stað styttri námskeið í rumbu, merengue, ChaChaCha og kynningarnámskeið fyrir byrjendur. Námskeiðin eru á mismunandi getustigum og því ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Allar nánari upplýsingar má finna hér til hliðar á heimasíðunni þar sem skráning er hafin.

Lesa meira...

Salsaveisla á Thorvaldsen

Skrifað: 2. júlí 12:55


Fimmtudaginn 8. júlí kl. 20:30. Að venju býður Thorvaldsen okkur geggjuð tilboð á barnum: bjór á 700, léttvín á 700 og mojito á 1000! Ókeypis prufutími fyrir byrjendur kl. 20:30. Sjáumst á dansgólfinu á Thorvaldsen!

Lesa meira...

Salsaveisla á Thorvaldsen

Skrifað: 2. júlí 12:45


Fimmtudaginn 19. ágúst kl. 20:30. Að venju býður Thorvaldsen okkur geggjuð tilboð á barnum: bjór á 700, léttvín á 700 og mojito á 1000! Ókeypis prufutími fyrir byrjendur kl. 20:30. Sjáumst á dansgólfinu á Thorvaldsen!

Lesa meira...

Seinni lota sumarnámskeiða að hefjast, og salsa á Thorvaldsen fimmtudaginn 1. júlí!

Skrifað: 28. júní 9:57


Sumarið líður, en ekki án dansins! Rumbu - og merenguenámskeið fyrir öll stig hefjast á fimmtudag, og í næstu viku chachacha og Kynningarnámskeið fyrir byrjendur! TAKIÐ EFTIR að við höfum neyðst til að loka fyrir skráningu á stökum dömum á kynningarnámskeiðið, en þær geta þó skráð sig á biðlista. Skráning er enn opin fyrir pör og staka herra. Og ekki gleyma salsakvöldinu okkar fimmtudaginn 1. júlí, ókeypis prufutími að venju kl. 20:30, Taxi dansar frá SIST og tilboð á barnum!

Lesa meira...