Hópefli/veislur

Sýningar


SalsaIceland býður fyrirtækjum og félagasamtökum uppá sýningaratriði á hvers konar skemmtunum. Styttri og lengri atriði í boði, allt eftir samkomulagi. Tökum einnig að okkur stutta sem lengri kennslu fyrir hópa.

Hafið samband við salsaiceland@salsaiceland.is fyrir frekari upplýsingar.


Salsa fyrir hópa


Ert þú með hóp sem þig langar að hrista saman? Þá er salsa rétta svarið. Við höfum tekið að okkur allar gerðir hópeflis/sýningar/prufutíma fyrir vinahópa jafnt sem fyrirtæki, og reynist þetta frábær aðferð til að skemmta sér saman og skapa skemmtilega stemmningu, t.d. fyrir árshátíðina / gæsunina / óvissuferðina. Þetta getum við gert í sal á okkar vegum, eða komið til ykkar! Endilega hafið samband ef þið hafið frekari spurningar eða viljið bóka okkur: salsaiceland@salsaiceland.is.

Við tökum einnig að okkur uppákomur í veislum, mætum til að kenna gestum og sýnum salsa í lokin ef óskað er.