Einkatímar

Þetta form kennslu verður sí vinsælla meðal nemenda SalsaIceland, hvort sem um ræðir byrjendur eða lengra komna. Það hentar vel til skjótra framfara og gefur góða æfingu í fylgja/stýra tækni, jafnt sem þarna gefst kostur á einstaklingsbundnum ráðleggingum sem geta farið ofan garð og neðan á fjölmennum námskeiðum.

Allir kennarar SalsaIceland gefa kost á sér í einkakennslu, stakur tími kostar 4500 (fyrir einstakling, 5500 fyrir par). Kennslustundin er 50 mínútur og framkvæmd tímanna er samkomulagsatriði milli nemanda og kennara.

Til að bóka má senda okkur póst á salsaiceland@salsaiceland.is.