Spurningar

"Þarf ég að hafa félaga til að skrá mig á námskeið SalsaIceland?"

NEI! Eitt það besta við byrjendanámskeið hjá SalsaIceland er að við róterum alltaf milli dansfélaga á námskeiðum, þannig að allir dansi við alla (nema það sé ósk ykkar að dansa bara við eigin félaga, sem er í fínu lagi líka). Þannig er það engin hindrun að vera stakur, og um helmingur þáttakenda á námskeiðinu mæta venjulega einir.
Staðreyndin er sú að á hefðbundum salsakvöldum og salsaklúbbum eru allir að bjóða öllum upp, og ekki hefð fyrir því að maður haldi sig bara við einn dansfélaga. Það getur verið svolítil kúnst að venjast mismunandi dansfélögum, og því er eins gott að læra þetta bara strax á námskeiðinu. Þessi félagslegi þáttur er meðal þess sem gerir salsa að svo gífurlega vinsælu skemmtanaformi út um allan heim.

"Ég er búin að læra smá salsa - þarf ég að fara á byrjendanámskeið?"

Salsa er mismunandi eftir því hvar það er dansað og áherslur í kennslu ólíkar. Gott er að hafa í huga að hjá SalsaIceland er kenndur pardans, og rík áhersla lögð á stýringu og fylgjatækni. Því er erfitt að hoppa inn á 2. stigs námskeið nema að einhver grunnur í þessum hlutum sé til staðar. Við ráðleggjum venjulega öllum að prófa alla vega tíma í byrjendanámskeiði, og meta svo stöðuna. Ykkur er líka velkomið að senda okkur mail á salsaiceland@salsaiceland.is og fá frekari ráðleggingar. Einnig er gott að skoða leiðbeiningar okkar um getustig hér.

"Ég hef lært annan dans - á ég að fara á byrjendanámskeið?"

Sjá svar hér að ofan.

"Hvar fæ ég svona flottan SalsaIceland bol?"

Bolirnir eru í kvenna og karlasniði, í nokkrum stærðum og gerðum. Þeir eru seldir á kostnaðarverði í gegnum kennara SalsaIceland á flestum atburðum SI að salsakvöldum undanskildum. Áhugasömum er bent á að senda okkur tölvupóst á salsaiceland@salsaiceland.is.

"Get ég fengið að merkja eigin föt SalsaIceland lógóinu"?

Jahá - sendu okkur bara mail á salsaiceland@salsaiceland.is og við leiðbeinum þér.

"Á hvaða getustigi er ég?"

Þetta er eitthvað sem lengra komnir nemendur okkar spyrja gjarnan í ljósi aukins framboðs á námskeiðum hjá okkur. Gott er að kíkja á leiðbeiningar okkar um getustigskröfur hér.

"Hvað er þetta lady og men's styling, - þarf ég að læra það?"

Þetta er enginn nauðsynlegur hlutur, í þessum tímum er farið í auka tæknihluti og "kryddi" bætt við hreyfingarnar, dansinn í skrefunum aukinn með því að nota hendur, mjaðmir eða fætur til að krydda skrefin aðeins. Ekkert nauðsynlegt, en voða skemmtilegt, að margra mati. Lady og men's styling byggir á fótafimi ("footwork") og "body isolation" æfingum sem eru nauðsynlegar til að flæði fáist í flétturnar, svo það er alltaf kennt á námskeiðunum hjá okkur.

"Mig langar að læra alls kyns flóknar fléttur og snúninga- svo ég verði GÓÐUR salsa dansari..."

Auðvitað er gaman að kunna flóknar fléttur og snúninga... En þetta er er EKKI það sem gerir þig að góðum salsadansara! Góður salsaherra stýrir dömunni sinni skýrt og greinilega, og tímanlega! Ef hann gerir það nær daman að vera róleg og sjálfsörugg, og fær tækifæri til að láta sér líða vel og skemmta sér í dansinum. Að sama skapi þarf daman að átta sig á hlutverki sínu sem fylgjandi. Skortur á lestri merkja, ágiskanir og það að gera snúninga án þess að hafa fengið merki um þá gerir dömuna erfiða í stjórnun. Skapist gott jafnvægi milli “stýranda” og “fylgjanda” þarf alls ekki flóknar fléttur til að parið skemmti sér, og þá skín gleðin af þeim langar leiðir þó um einfalda danssnúninga sé að ræða.